Hver þekkir annars geiminn?

En skemtilegt að sjá viðbrögð fólks við svona greinum. Nei það eru sko ekki til geimverur! Ekkí læji!? Bara heimskulegar teiknimyndasögur.... horfðiru of mikið á X-files haaaaa? hahaha algergir bjánar.

Ég vil samt ekki gerast svo hrokafull að neita algerlega að það er möguleiki á vitsmunalífi annarstaðar og jafnvel bara á næstu plánetu. Hvaðan kem ég annars? Er ég og allt líf á jörðinni kannski bara önnur fantasía kannski? Djöfusins bjánar eru þið, líf á jörðinni?? HAHAHA!

En já, ég hef aldrei séð Mars... ég hef séð myndir já, hver reddaði okkur almeningnum myndirnar? Ég trúi ekki þeim sem sitja á myndunum frekar en ég trúi verslunarmönnum sem auglýsa stór tilboð, afsláttur á hinu og þessu, afslátturinn búinn að vera á vörunum síðastliðin 4 ár (hækkaði aðeins í ár) og ennþá tilboð! Stórsparar ;D 

 

William Cooper 

 

 


mbl.is „Það eru til geimverur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já er það já?

Úff ég fæ alltaf rosalegan kjánahroll þegar ég les svona fréttir, ég bara skammast mín. Ég býst við að ég muni ekki sjá mannkynið þróast fram á við á minni lífstíð, frekar á hinn veginn.

 George Carlin:

 


mbl.is Biblíuskemmtigarður í bígerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og hvað...?

Hver er tilgangurinn með þessari frétt? Fullt af fólki sem hagar sér illa í flugi.

 

Á almennu flugi merkis menn,
þeir lentu í flugdólgi votum.
Í blöðin ein fréttleysan enn. 
Réttlætir þörf á einkaþotum?


mbl.is Flugdólgur í vél með íslenskum þingmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bráðsmitandi

Það er búinn að vera bráðsmitandi vírus að ganga um allan heim lengur en elstu menn muna, passið ykkur því að lækningin virkar ekki eins vel og ætla mætti, ekki vanmeta mátt heilaþvottar! Ég mæli með að fólk skoði þessi tvö myndbönd frá Richard Dawkins, Root of all evil?

 

Fyrsti þáttur: 

http://video.google.com/googleplayer.swf?docId=9002284641446868316&hl=en

 

Annar þáttur:

http://video.google.com/googleplayer.swf?docId=-8210522903232438954&hl=en

 


vísa

Komi þeir, sem koma vilja,

veri þeir, sem vera vilja,

fari þeir, sem fara vilja,

mér og mínum að meinlausu. 


mbl.is Pólsk glæpagengi herja á aðra Pólverja hér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skólaböll og bjórkvöld

Ég man eftir bjórkvöldi í skólanum mínum, haldið á skemtistað og það var 18 ára aldurstakmark, það voru nokkrir dagar í að ég yrði 18 og var nokkuð viss að ég kæmist inn, enda 18 ára aldurinn rétt handan við hornið. Ég var beðin um skilríki þegar ég kom á staðinn og ég sýndi það, nei ég fékk sko ekki aðgang! Ekki til í myndinni, enda bara ennþá 17 ára bjáni (dyravörðurinn hélt að ég væri alger auli að halda að ég kæmist inn). Það sem mér fanst verst er að hópur af nýnemum, já 16 ára guttum voru inni að drekka bjór, það er nefnilega þannig að börn sem mæta með skilríki annara komast inn án vandræða, þótt það vanti til eða frá nokkur tugi kólóa, kinnar, nef eða munnur búin að breitast og hárið tekið skakkaskiptum, á meðan ártalið á skiríkjunum er rétt að þá geta börning gert það sem þau vilja. Já ég var rosalega súr og fanst þetta mjög óréttlátt, ég ætlaði ekki einu sinni að drekka enda á bíl, ég klagaði þó ekki krakkana, hefði frekar viljað klaga dyravörðin en var ekki að gera meira í þessu, brunaði bara heim. Vandamálið er ekki beint að staðirnir eru að hleipa öllum inn og selja öllum áfengi heldur mætti skoða betur skilríkin! Þau eru öll með skilríki eldri systkina og eldri vina.
mbl.is Lokun eina ráðið við unglingadrykkju á skemmtistöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kimmi með Hjálma

Núna á laugardaginn sprakk hausinn af mér! Já ég og ástin mín fórum á tvenna  tónleika! Við fórum að sjá hann Kimma minn, götustrákinn trallandi hann Kim Larsen, rosa stuð, við vorum í stúku og ég gat ekki setið kyrr, bekkurinn iðaði allur, enginn gat setið kjurt. ég var dansandi í sætinu og lappirnar sópandi gólfið í dansi og takt. Hljómsveitin sem Kim var með var rosalega flott, þeir stóðu sig príðilega og tóku öll uppáhalds lögin mín! Þeir tóku Vend Kajaken, Köb Bananer, 682 A og fleiri og fleiri. Svo drifum við okkur út í bíl og brunuðum af stað á næstu tónleika, við fórum nefnilega á útgáfutónleikana með Hjálmum og það var geðveikt! Ég get ekki lýst tónleikunum í orðum, tilfiningin var ólýsanleg, þeir voru bara svo góðir, stemningin var eldsjóðandiheit kryddsúpa. Allir dönsuðu með, andrúmsloftið stinkaði af svitafílu, þannig á það að vera á stuðtónleikum, er þaggi? ;) Þeir spiluðu þar til húsið sprakk. Ég og ástin mín vorum farin að finna vel á okkur og bölvuðum því þegar tónleikarnir voru búnir að Hjálmar hefðu ekki tekið auka lag.... svo litum við á klukkuna, já ái! Þeir höfðu spilað í 3 klukkutíma! Frá 12 til 3!! Við skildum vel afhverju það var ekki aukalag. :P Eftir tónleikana fórum við heim til vinar okkar, fengum að brotlenda í svefnsófanum hanns og vöknuðum glæsilega skrautleg dagin eftir, pizza við þynku er allveg málið, þ.e. ef maður getur haldið henni niðri, já ég gat það ;)
En núna er ég pínku hissa... hvar eru dómarnir um Hjálmar tónleikana????? Ég sé þá hvergi, dáldið spæld yfir því sko.


mbl.is Kim Larsen hélt uppi fjöri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Minnir mig á...

Atriði um akkurat þetta með Bill Hicks 

Non Smokers

 

 

 


mbl.is Sleginn í rot fyrir að reykja í dyragætt á krá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Úggabúgga

Ætlar  mannkynið ekkert að þróast, sami fornaldar hugsunarháttur öld eftir öld.

Förum öll að leika úggabúgga og lemjum þá sem erum öðruvísi en hinn heilagi "hvíti" stofn, ekki ætlum við að svíkja uppruna okkar? Verum stolt af hver við erum!! ÚGGABÚGGA! ÚHÚHÚHÚÍÍÍÍHAAAAHAAAAA! 

En afhverju eru mestu górillurnar þá með svona mikla fordóma gagnvart svörtum? Górillurnar eru alltaf að líkja svertingjum við uppruna mannkyns, þeir ættu að fá meiri virðingu ef eitthvað. Kannski er það virðingavert að haga sér einsog górilla frekar en að "líkjast" henni (ekki mitt álit, en fordómafullt fólk segir að svartir líkist górillum). 

En að ráðast á "sitt fólk" því að þeir trúa á annað og klóra sér ekki undir höndunum er algerlega útí hött en fólk ætti ekki að ætlast til meira af óðum górillum, vantar mikið í hausinn hjá aumingja fólkinu. 

 

 


mbl.is 80 handteknir í átökum nýnasista og andstæðinga kynþáttafordóma í Prag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Henni var nær

Sama hve tilfiningalega heftur drjólinn er að þá á aldrei að halda afmælisveislu á sama dag og það er stórmót í íþróttum. You just don't do it!

 

Kissing


mbl.is Harry prins og Chelsy Davy hætt saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband