Í alvöru?

Finst fólki þetta í lagi? Er plastfólkið að væla yfir að beinagrind fékk á sig smá húð? Ekki mikið þyngri en jólasteikin! og fólk er að segja "æjj hún er bara pínku feit"... ha?? Ég bara á ekki til orð, fólk er í alvöru að skrifa um þetta í BLÖÐUNUM! Það er ekkert að tala um hér! Ekki neitt nema skot í auðvelt skotmark. Og svo skilur fólk ekkert í þessari beina dýrkun hjá ungu fólki. Fólk verður ekki heilbrigt fyrr en fréttirnar sem það fær eru heilbrigðar.

Ég ætti kanski að fara að skrá mig í magaminkun, 177 á hæð og 64 kíló, ég er OFFITUSJÚKLINGUR! Ég ætla núna að hætta að velta mér uppúr fréttum sem gera fólk vitlaust og spá í þeim fréttum sem skipta máli, svo ætla ég að gera mér sallat með lífrænt ræktuðu ryki og vatni og fela hvalslíkamann frá umheiminum þar til að ég sé almennilega í fallegu beinin. 


mbl.is 2,3 kg þjóðarhneyksli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Oddrún

Ég get millifært af mér yfir á hvaða "beinagrind" sem er... Fyrstur kemur fyrstur fær

Oddrún , 26.9.2008 kl. 22:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband