Færsluflokkur: Bloggar
4.7.2009 | 12:26
Eniga meniga...
....
allir rövla um peninga
Súkkadí - púkkadí
kaupa meira fínerí
kaupæði - málæði
er þetta ekki brjálæði
Flokkast þessi sýndarmenska sem niðurskurður?
Hraðamælingar úr lofti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2009 | 13:22
ojjbara
Fingraför í vegabréf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.6.2009 | 11:08
Rafmagnsleysi
Erilsamt hjá lögreglunni á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.6.2009 | 13:25
Víkingahátíðin
Ég hef verið fastagestur víkingahátíðarinnar í mörg ár og altaf haft gaman af henni, man eftir þegar hún var fyrst á Víðistaðatúni, stór og myndarleg hátíð, fullt af fjölbreittum og skemmtielgum sölubásum og annað eins af skemmtiefni, eftir að hátíðin flutti að fjörukránni hefur hún minkað talsvert en sjarminn og fjörið var enn til staðar en nú í ár og líka í fyrra virðirst hátíðin vera að flosna upp. Sölubásarnir hafa snarminnkað og mér finst ég alveg eins geta farið í túristabúð hvar sem er í skandinavíu til að kaupa það sem var á borðstól, þó voru nokkur gömulkunn andlit að selja skemmtileg handverk. Þetta er nefnilega að breytast í hundleiðinlega gróðarstarfsemi verslana og fólk hefur bara ekkert áhuga á því! Enginn kemur að kaupa og hátíðin drabbast niður.
Svo er fjörukráin sjálf engu betri! Dýrasta búllan í bænum og maturinn rambar á milli annars og þriðja flokks.
Ég keypti handa mér og frænku minni stórar franskar á heilar 800kr og skammturinn var minni en venjulegur lítill! Fæ meiri franskar með hamborgara á hvaða veitingastað sem er. Get fengið stórann skammt á pulsubarnum í hfj á hvað... ca 600-700kr... man samt ekki allveg verðið en sá skammtur en uþb fjórfallt stærri en sá sem ég fékk á fjörukránni, sé ógeðslega eftir að hafa pantað þetta þarna. Frænka mín fékk svo litla kjötsúpu um kvöldið á 2000kr (hægt að fá hana á daginn á 200kr fyrir utan!), systir mín pantaði pasta með humar á 3000 og viti menn, það var eitt stykki humar! Enda fleirtala ekki tekin framm á matseðli. Fyrir svona ári síðan fékk kærastinn minn bbq rif og hann gat ekki borðað það, svona 80% bein og rest var fita og hart kjöt og við kærastinn minn erum sammála að hamborgarinn braðast einsog bitið sé í skítuga ull (semsagt keimur af burgernum). Svo má ég til með að tuða yfir 900kr bjór!!! Versla aldrei aftur við þessa búllu. Ef maturinn er dýr er bara eins gott að hann bragðist sómasamlega!
Mér finst þetta svo sorglegt, uppáhalds hátíðin mín er dáin, eigandi fjörukránnar drap hana, ég elska þennan stað, flottur og sjarmerandi en reksturinn er farinn fjandans til gagnvart kúnnum. Fólk ætti alltaf að hafa eitt í huga þegar það er að versla, ef fyrirtækið gefur skít í kúnnan á kúnninn að gera slíkt hið sama! Ekki kaupa meira og valsa út í hugsunarleysi. Ég hef mælt með þessum stað við túrista í gegnum tíðina en aldrei aftur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2009 | 23:42
Kannabis
Þetta heitir kannabis, hass er búið til úr kannabis plöntu. Alltaf verið að sverta hlutina í fjölmiðlum, leiðindar dramatík, eru allir fréttamenn histrionic? pfff geðveikt hneiksluð ;D En já þetta eru góðar fréttir, vonandi eru borgarayfirvöld ekki að bíða eftir að fleiri verða drepnir í óþarfa slagsmálum undirheima útaf friðsömu vímuefni (ekki fíkniefni heldur vímuefni).
og svona í lokin ætla ég að setja við færsluna VIÐEIGANDI myndir (allavega að mínu mati), og til að gera andstætt þema fréttarinnar að þá ætla ég að velja eithvað glaðlegt, mynd mbl gæti vel í augum flestra átt við um krakk notendur.... þarf að taka framm að það er mikill munur á milli krakk og kannabis? Þar að auki eru til svo margar flottar pípur! og alls ekki krafa að nota gersemin, margar sóma sig vel uppí hillu ósnertar enda algert augnayndi :D
Íhuga að lögleiða hass í Kaupmannahöfn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.6.2009 | 08:21
ómægod
Skilru, bjáni, veit hann ekki að það er ljótt að lemja!
En það er allt í lagi að ofsækja fólk með myndavél og ofvirku flassi, leggja í einelti, segja ljóta huti við það til að ná ljótri grettu mynd sem selst á mikklu meira, það er allt í lagi að ofsækja kærustur fólks og húka við gluggana á heimilinu til að ná prívat og meira shocking leindó myndum nú eða bara gera sig heimakominn og planta sér þæginlega fyrir í næsta runna til að fylgjast með í leini í langan tíma.
....eða er fólk með sjúklega truflaða siðferðiskennd?
Árásargjarn Grant | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2009 | 18:06
Klám? Má ég sjá?
Pffft, ég get séð meira hold í sápuóperum!
Stelpan er ekki einusinni daðursleg í framan og pilsfaldurinn nær vel fyrir neðan rass og hún stendur upprétt, brjóstin.... hljóta að vera þarna á sínum stað (ekki einsog að þau springi útúr myndinni) og daman stendur bein í baki með tól í hendi tilbúin að lækna bílinn (það er örugglega það eina sem hægt væri að tengja við klám en þetta er nú orð sem ég valdi að skrifa). Ég þoli ekki karlrembur og það er annað sem ég þoli ekki og það eru KVENNrembur.
Rembusvín geriði það og hættið þessum helvítis fasisma, fólk kærir sig ekki um slíkt kjaftæði!
Ósátt við auglýsingabækling | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2009 | 21:31
Vill einhver snerta hann?
Fólk farið að streyma í Hallgrímskirkju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2009 | 11:05
Ekki er öll vitleysan eins
Hefur fólk gleymt því hvað trefjar gera fyrir okkur?
Gráðugur halur,
nema geðs viti,
etur sér aldurtrega.
Oft fær hlægis
er með horskum kemur
manni heimskum magi
Niðurgreiðir Detox meðferð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2009 | 16:13
Vertu til, er vorið kallar á þig...
Leningrad Cowboys eru að raula í hausnum á mér með kór rauða hersins ;D
Katjusha
Volga Boatmen
Happy Together
It's only rock and roll
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)